Nýtt ár

Gleðilegt nýtt ár,

Ég er ekki neitt búin að nenna að blogga, ég er mjög fegin að hversdagsleikinn er kominn og maður getur farið að hætta að dekra við sjálfan sigUndecided. Á nýju ári ætla ég að fara að taka heilsuna í gegnW00t og fara að skokka sem by the way ég gerði í gær. og borða minna. Ég er búin að vera í einhverju hreiður stuði síðan um áramót, byrjuð að strauja, skipulag á þrifum og þvotti og versla dúllu hluti fyrir heimilið sem er kannski ekki eins gott. Fór á loppumarkað um helgina og kom heim með tvo poka af dóti til að setja í eldhúsið sem maðurinn minn var ekkert hoppandi glaður, svo í gær var leiðin til IKEA"það eru margir rosalega flottir hlutir þar", ég keypti ljósakrónu  rosa flotta.

Hérna í Danmörkinni er nú búið að hlýja slatta en samt er þetta ekkert veður, grámyglulegt og rigning, ég get ekki beðið eftir að það kemur sumar.....

Jæja ég þarf víst að fara að vinna til að þéna pening fyrir þessu kaupæði sem er í gangi.

Kveð í bili


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

kaupassjúk ertu !!!

hafðu fallegan dag ástin mín

BLESS

mamma þín 

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 11.1.2008 kl. 09:07

2 Smámynd: Anna Vala Eyjólfsdóttir

Hahhahah Skokka Sigyn elskan min ertu buin ad drekka of mikid af bjor og jagermaster?? Og joladekur hvad er tad? Er tad heit sturta....ooohh eg vaeri tili eina slika.

Luv og hafdu tad gott....Miss u

Anna kenyska

Anna Vala Eyjólfsdóttir, 17.1.2008 kl. 06:53

3 Smámynd: Gunnar Páll Gunnarsson

sko, hún Sigyn mín drekkur sig ALDREI fulla! bara smávegis íðí af og til, svo er hún ennþá aðjafna sig á sjokkinu sem hún fékk þegar hún kom til  DK. og sá að flaska af einverju rosagóðu kostaði minna en meðallóð  í 101 RVK. Henni er vorkun blessaðri.

Gunnar Páll Gunnarsson, 17.1.2008 kl. 20:22

4 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Oh... ég öfunda þig að geta farið á loppemarkað! Fór með mömmu þinni í sumar og fannst það gaman. Man samt að það var hræðilega heitt!! Hafðu það gott þarna í hlýjunni. Hér er bylur í Bolungarvík og snjór!

Ylfa Mist Helgadóttir, 18.1.2008 kl. 08:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband